Persónuvernd
Síðast uppfært: ágúst 2026
qrkodi.is er hannað þannig að persónuvernd þín sé höfð að leiðarljósi frá grunni.
1. Gerð QR kóða
Allur útbúnaður QR kóða fer fram í vafranum þínum. Vefslóðir, textar, WiFi-upplýsingar, nafnspjaldsgögn og annað efni sem þú slærð inn í kóðagerðina er aldrei sent til netþjóna qrkodi.is - kóðinn er teiknaður beint í vafranum þínum og gögnin fara aldrei af tækinu þínu, nema þú veljir að senda þau, til dæmis með því að biðja um að fá kóðann sendan í tölvupósti.
2. Tölvupóstur
Ef þú notar valmöguleikann „Fá sent í tölvupósti“ söfnum við netfanginu þínu eingöngu til að senda umbeðinn QR kóða. Netfangið er ekki notað í neinum öðrum tilgangi nema þú hakir sérstaklega við að þú viljir einnig fá ráð um QR kóða og markaðssetningu - það val er algjörlega valfrjálst og þú getur afskráð þig hvenær sem er.
3. Vafrakökur og auglýsingar
Engar auglýsinga- eða mælingakökur eru settar á tækið þitt fyrr en þú samþykkir það sérstaklega í samþykkisborðanum sem birtist við fyrstu heimsókn. Hafnir þú, eru engar slíkar kökur settar og engin gögn send til þriðja aðila í auglýsingaskyni.
4. Fyrirtækjaþjónusta (embed)
Ef fyrirtæki notar qrkodi.is generatorinn innfelldan á sinni eigin vefsíðu gilda sömu reglur: gögn viðskiptavina fyrirtækisins fara aldrei í gegnum okkar netþjóna - kóðinn er búinn til í vafra viðskiptavinarins, alveg eins og á qrkodi.is sjálfu.
5. Réttindi þín
Þú átt rétt á að fá upplýsingar um, leiðrétta eða eyða þeim persónuupplýsingum sem við kunnum að hafa um þig, til dæmis netfang á póstlista. Hafðu samband á hjalp@qrkodi.is til að nýta þennan rétt. Um vinnslu persónuupplýsinga gilda íslensk lög og reglur Persónuverndar.